FÍB FORSÍÐA

Eldsneytisverð
Höfuðborgarsvæðið
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
  
Landsbyggðin
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
Sjá nánar á GSMBensín.is
 

Spurningin
Hvorir eru betri og öruggari ökumenn?
Konurnar eru betri
Karlarnir eru betri

Niðurstaða könnunar

 

Skráninga á póstlista FÍB


Félag Íslenskra Bifreiðaeigenda á Facebook
Þjónusta

..

-


 FÍB Aðstoð – þjónusta sem er innifalin í félagsgjaldinu! 


 

 FÍB býður félagsmönnum sínum hjálparþjónustu  – FÍB aðstoð. Aðstoðin felur í sér eftirfarandi:

- Dráttarbíll (félagsmenn greiða sjálfir yfirvinnuálag eftir klukkan 18:00    og um helgar)

- Dekkjaaðstoð – skipti/loft

- Start

- Eldsneytisaðstoð (5 ltr – félagsmaður greiðir eldsneytið)

  Þjónustan er bundin við afmörkuð þjónustusvæði á landinu og eru þau þessi:

- Höfuðborgarsvæðið

- Akureyri

- Hveragerði

- Selfoss

- Borgarnes

Takmörkuð aðstoð:

- Reykjanesbær (dekkjaaðstoð, start og eldsneytisaðstoð)
 

- Egilsstaðir (dekkjaaðstoð, start og eldsneytisaðstoð)

 Símanúmer FÍB aðstoðar er 5-112-112. Við svörum allan sólarhringinn og veitum einnig upplýsingar um hvert best er að leita ef félagsmaður er staddur utan þjónustusvæðis.

 

 

Skilmálar og skilyrði FÍB aðstoðar

Framvísa þarf gildu félagsskírteini og kvitta.  Allir félagsmenn FÍB sem staðið hafa skil á félagsgjaldi eiga aðgang að FÍB aðstoð innan þeirra landfræðilegu marka sem sett eru hverju sinni ef veður og færð leyfa.  Aðstoðin miðast við að ökutækið sé á bílastæði, götu  eða vegi en ekki á stað þar sem akstur er óheimill, í vatni, foraði eða öðrum vegleysum.

FÍB aðstoð er ekki veitt þegar henda á bílflaki eða til að flytja númerslausa bíla.

Þjónustan er veitt hverjum félaga í FÍB óháð farartæki innan ramma þessara skilmála.

FÍB aðstoð sinnir fyrst og fremst bráðatilvikum (sbr. þjónustuupptalningu). Ætlast er til að félagi viðhaldi ökutæki sínu á viðeigandi og fullnægjandi hátt.

Lög FÍB veita stjórn félagsins rétt til að víkja félagsmanni úr FÍB, ef viðkomandi misnotar þjónustu félagsins.

Aðstoðarbeiðni á að fara í gegnum skrifstofu FÍB.  Sími FÍB aðstoðar er 5 112 112 og hægt að ná sambandi við aðstoðarþjónustuna allan sólarhringinn.  Á kvöldin og um helgar svarar Securitas á Akureyri síma FÍB aðstoðar 5 112 112. Öll nætur- og helgaraðstoð miðast við bráðatilvik og neyð.

Vegna dráttarbíls greiðir félagsmaðurinn yfirvinnuálagið sjálfur eftir kl.18 og um helgar.

Félagsmaður á rétt á ókeypis þjónustu dráttarbíls á dagvinnutaxta, innan tiltekinna þjónustusvæða, einu sinni á ári. Hafi ókeypis dráttarbílaaðstoðin verið notuð fæst 15% FÍB afsláttur af þjónustu Vöku.

Kostnað vegna aukahluta, eldsneytis, olíu o.s.frv. ber félagmaður.

FÍB mun ekki greiða kostnað sem fellur til vegna þess að varahjólbarði er ekki til staðar eða ekki í lagi.

Takmarkanir vegna stærðar og þyngdar eru sem hér segir:
- Farartæki allt að 3.500 kílóum í heildarþyngd
- Heildarbreidd 2.3 metrar.
- Heildarlengd ( á vélknúnum farartækjum) allt að 5.5 metrar.
- Dekkjastærð allt að 33”.
 

Til baka - senda Senda - Prennta Prentvæn útgáfa - Deila

 

    Umferðarstofa   Bílgreinasambandið