Þegar ekið er um jarðgöng og umferð stöðvast skal drepa á bíl og halda kyrru fyrir með glugga lokaða. Ef eldur kviknar í bíl í jarðgöngum skal reyna að slökkva eldinn en að öðrum kosti að forða sér hið fyrsta út úr göngunum. Þetta á sérstaklegu við um eld í stórum bílum. Víða eru slökkvitæki og neyðarsímar í göngum til að nota í neyð. Ef ekki er hægt að snúa við eða að forða sér á bíl skal hann yfirgefinn með lykil í kveikjulás. Tilkynna skal um eldinn svo fljótt sem unnt er.
Algengasta orsök umferðaslysa eru mannleg mistök. Helst er um að ræða vanmat á hraða og fjarlægð (hraðablinda), mistúlkun aðstæðna, athyglisbrest eða rangt mat á fyrirætlunum annarra. Alltaf þarf að hafa fulla athygli og raunsæjar hugmyndir um hættur og aldrei taka óþarfa áhættu í umferðinni.
Þreyta og syfja ökumanna veldur mörgum slysum. Ef svefn sækir á er nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir. Best er að stoppa á öruggum stað, fara út úr bílnum teygja úr sér og fá ferskt loft í lungun. Góð loftræsting inni í bílnum (niðurskrúfaðar rúður) skipta miklu máli. Sumir hafa súran eða beiskan brjóstsykur tiltækan, en hver og einn ökumaður þekkir hvað gagnast honum best við þessar aðstæður.
Farþegi í framsæti ætti að forðast að sofna, því með því móti hefur hann verulega svæfandi áhrif á ökumann. Stórhættulegt er fyrir framsætisfarþega að halla sætisbaki aftur og sofna. Við þær aðstæður koma eiginleikar bílbeltisins alls ekki að tilætluðum notum.
Vera ávallt vakandi fyrir sérstökum tilkynningum í útvarpi eða við vegi um hættur eða framkvæmdir og fylgja öllum fyrirmælum sem gefnar eru, svo sem um minnkun á leyfðum hámarkshraða.
Efnið er fengið af vef Umferðarstofu, www.us.is.