Vorhreinsun er hafin

Vorhreinsun er hafin en helstu göngu- og hjólaleiðar eru í forgangi. Hluti af vorhreinsun er götuþvottur íbúagatna.

Daginn áður en íbúagötur eru þvegnar sendir Reykjavíkurborg SMS með dagsetningum hreinsunar send til íbúa og merkingar settar upp í götum áður en þær eru sópaðar og þvegnar. Til þess að allt gangi sem best biðjum við þig um að færa bílinn þinn af almennum svæðum í götunni.

Eins og áður kom fram er byrjað á hreinsun helstu göngu- og hjólastíga – sem og stofnbrauta, tengibrauta, gatna og stíga í kringum þær.

Síðan hefst hreinsun og þvottur húsagatna, stétta og stíga við þær.