Kvikmyndatökur við Sæbraut - Lokað fyrir alla bílaumferð
Um þessar mundir standa yfir kvikmyndatökur í Höfða vegna kvikmyndar um leiðtogafund Ronald Reagans fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og Mikhail Gorbachev fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna. Af þeim sökum verður lokað fyrir umferð á Sæbraut laugardaginn 26. Október af því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Nk. laugardag fara tökur fram utandyra og af þeim sökum þarf að loka hluta akbrautarinnar fyrir allri umferð milli Kringlumýrarbrautar og Snorrabrautar.
Laugardaginn 26. október verður lokað milli klukkan 8:00-13:00 á meðan tökur standa yfir. Katrínartún verður einnig lokað allri umferð milli klukkan 8:00 til 18:00