28.02.2024
Bann við nýskráningum bensín- og dísilbíla tekur í gildi hér á landi 2030. Frá og með þeim tíma eiga allir nýir bílar, fólksbílar, að vera knúnir rafmagni, vetni, metani og eða öðrum orkugjafa sem ekki er sóttur í jörðu. Þetta er sjálfsagt með mestu breytingum í loftslagsaðgerðum stjórnvalda sem almenningur mun finna fyrir. Það voru teknar upp ívilnanir til að greiða fyrir kaupum almennings á rafbílum og fyrir vikið lækkuðu þeir töluvert í verði. Síðan hefur eitt og annað verið gert af hálfu stjórnvalda sem hefur orðið þess valdandi að verð á rafbílum hefur hækkað.
27.02.2024
Rafbíllinn Renault Scenic E-TEC var valinn Evrópubíll ársins á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf í Sviss. Samkvæmt tilkynningu frá BL hlaut Renault Scenic E-TEC afgerandi sigur með 329 stigum. Þetta er í sjöunda sinn sem Renault hlýtur þessi verðlaun en þetta var í 61. skipti sem viðurkenningin er veitt.
27.02.2024
Það sem af er þessu ári er samdráttur í nýskráningum fólksbifreiða um 52,4%. Nýskráningar eru núna orðnar alls 730 bifreiðar en voru á sama tímabili í fyrra 1535. Í febrúar einum eru þær alls 273 en voru í sama mánuði í fyrra 802. Bifreiðar til almennra notkunar eru alls 77,9% og rúm 20% til ökutækjaleiga. Þetta kemur fram í tölum frá Bílgreinasambandinu.
26.02.2024
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, sem var gestur Spursmála á Morgunblaðinu, vill ekki meina að ástand vega hafi orðið þess valdandi að banaslysum fjölgaði mjög í umferðinni í upphafi þessa árs. Sjö einstaklingar hafa nú látist það sem af er ári, einum færri en á öllu síðastliðnu ári.
23.02.2024
María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir að innleiðing kílómetragjalds á rafbíla um áramótin með svo skömmum fyrirvara hefur haft töluverðan kostnað og óþægindi í för með sér hjá fyrirtækjum sem hafa stóra bílaflota. Skrá þurfi inn kílómetrafjöldann handvirkt sem sé afar tímafrekt. En lög um gjaldtökuna tóku gildi skömmu fyrir áramót.
21.02.2024
Meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngum verður tekið í notkun á fimmtudaginn kemur, þann 22. Febrúar. Sjálfvirkt hraðaeftirlit er ein af megin áherslum í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
20.02.2024
Ekki hefur enn náðst að koma skynjurum á mótum Kleppsmýrarvegar og Sæbrautar í gagnið. Samgöngustjóri vonast til þess að úr rætist á næstu dögum. Fram kemur á ruv.is í umfjöllun um málið að starfsfólk Reykjavíkurborgar náði ekki að koma fyrir skynjurunum vegna umferðarljósa á gatnamótum Sæbrautar og Kleppsmýrarvegar um helgina eins og til stóð. Yfirborð vegarins var of blautt til að hægt væri að saga í veginn koma skynjara fyrir og loka aftur.Þetta var síðasti skynjarinn sem átti eftir að koma í virkni á Sæbraut.
19.02.2024
Hlutfallið milli negldra og ónegldra dekkja í janúar 2024 var þannig að 40,3% ökutækja voru á negldum dekkjum og 59,7% var á öðrum dekkjum. Hlutfallið var talið og reiknað miðvikudaginn 24. janúar að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
19.02.2024
Fjöldi nýskráninga fólksbifreiða fyrstu sex vikur ársins eru alls 549 bifreiðar. Á sama tímabili á síðasta ári voru þær 953 og er því um ræða 42,4% samdrátt í bílasölunni á milli ára. Það sem af er árinu eru nýskráningar til almennra notkunar alls 444 bifreiðar, sem er um 80,9% hlutfall. Til bílaleiga eru nýskráningar alls 98 bifreiðar sem er tæplega 18% hlutfall. Þetta kemur fram í tölum frá Bilgreinasambandinu.
19.02.2024
Sportjepplingurinn #3 væntanlegur á markað í vor.Sportlegar sveigjur og kraftmikill framhluti bílsins veita honum tímalaust og fágað yfirbragð. Sportlegt útlit bílsins er einnig endurspeglað í miklum afköstum.