30.10.2020
Á fundi evrópskra samgönguráðherra í gær lagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fram tillögu þess efnis að stafræn ökuskírteini yrðu viðurkennd í öllum löndum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES-svæðinu). Tillögunni var vel tekið og verður málið tekið upp á vettvangi EES-samstarfsins.
30.10.2020
Mikill uppgangur er hjá bandaríska bílaframleiðandanum Tesla og nú hefur fyrirtækið áform um að bæta að minnsta kosti við einni nýrri þjónustumiðstöð á heimsvísu í hverri viku á næsta ári. Tesla hefur verið að þétta net þjónustumiðstöðva um allan heim í kjölfar aukinna sölu sem kalli á betri þjónustu við viðskiptavini.
30.10.2020
Umhverfis- og heilbrigðisráð Reykjavíkur hefur samþykkt að hafin verði gjaldtaka fyrir hleðslu rafbíla og tengiltvinnrafbíla á hleðslustöðvum Reykjavíkurborgar í miðborginni. Tillaga um þetta kom frá skrifstofu umhverfisgæða.
29.10.2020
Rafbílaframleiðandinn Tesla mun í komandi viku opna nýja ofurhleðslustöð fyrir viðskiptavini sína við Staðarskála í Hrútafirði að því fram kemur í Morgunblaðinu. Afl hverrar hlöðu, sem eru átta talsins, er 250 kW en það er fimmfalt það sem fyrstu hraðhleðslustöðvarnar sem settar voru upp hér á landi gátu annað.
29.10.2020
Rafhleðslustöð hefur verið komið upp í Skálholti og þar verður hægt að hlaða fjóra bíla samtímis. Á kirkjan.is kemur fram að fagurgræn merkingin á bíltasæðinu fer ekki fram hjá neinum og yljar aflaust öllum umhverfisvinum um hjartarætur.
28.10.2020
Nýjan brúin yfir Jökulsá á Sólheimasandi sem smíði hefst við á næstunni verður tvíbreið og 163 metrar löng. Ennfremur verður ráðist í endurbyggingu á þjóðveginum þar hjá á um eins kílómetra kafla.
28.10.2020
Þjónustubókin er ný rafræn lausn sem safnar viðgerðar- og þjónustuupplýsingum frá bílaumboðum og verkstæðum um bifreiðar, samhliða gögnum frá Samgöngustofu. Er það gert með umboði eigenda bifreiðanna til að útbúa samræmda skýrslu um sögu bifreiða.
27.10.2020
Örlítill umferðarkippur varð í viku 43 miðað við vikuna þar á undan eða 3,1% aukning á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar reyndist umferðin í nýliðinni viku 19,5% minni en í sömu viku á síðasta ári samkvæmt tölum frá Vegagerðinni. Þetta er heldur minni samdráttur en varð í viku 42, sbr. eldri frétt þarf um.
27.10.2020
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 87 Soul EV (PS EV) bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að uppfæra þarf hugbúnað vegna rafmagnshandbremsu.
26.10.2020
Dýrafjarðargöng voru opnuð fyrir umferð i gær. Opnunin var með óvenjulegu hætti vegna Covid-19 og hringdi Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra. úr Vegagerðinni í Reykjavík vestur á Ísafjörð í vaktstöð Vegagerðarinnar. Þar lyftu menn síðan slánum upp frá báðum gangamunnum. Við munnana beið mikill fjöldi Vestfirðinga í löngu bílaröðum til að fá að komast í gegn og geta þannig fagnað þessari miklu samgöngubót sem göngin eru.