Fréttir

Fyrirhugaðir vegatollar mismuna fólki eftir efnahag

Sami vegatollur verður lagður á einstaklinginn sem aðeins hefur efni á 10 ára gömlum smábíl og einstaklinginn sem hefur efni á 20 milljón króna jeppa. Tekjulágir borga það sama og tekjuháir.

Vegatollurinn verður hár

Miðað við tekjuáform samgöngusáttmálans af vegatollum á höfuðborgarsvæðinu má gera ráð fyrir að þær verði 120 krónur af hverri ferð. En það er ekki allur vegatollurinn, því þetta er upphæðin sem á að fara til þessa að bæta samgöngur.

Vegatollar leysa ekki heimatilbúnar umferðarteppur

FÍB varar eindregið við þeim áformum að fjármagna stóran hluta samgöngusáttmálans með vegatollum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi gjaldtaka hefur ósanngjörn og ruglandi áhrif á verðmat húsnæðis, mismunar fólki eftir búsetu innan sama svæðis og er dæmd til að raska jafnvægi íbúabyggðar og atvinnulífs að því er fram kemur í tilkynningu frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB.

Svifryk sest á bílana – besta leiðin í þrifum

Gosmóða og gasmengun frá eldgosinu í Sundhnúksgígaröð á Reykjanesskaga hefur legið yfir höfuðborgarsvæðið síðustu daga. Hækkuð gildi af fínna svifryki, svokallað nornahár, og einnig hækkuð gildi brennisteinsdíoxíðs koma fram á mælistöðvum víða á höfuðborgarsvæðinu. Bifreiðar hafa ekki farið varhlutan í þessum kringumstæðum en þetta fína svifryk hefur sest á bílana.

Hleðslugarður opnaður í Öskjuhlíð

Orka náttúrunnar hefur opnað nýjan hraðhleðslugarð í Öskjuhlíð með samtals tólf tengjum. Hleðslustöðvarnar í nýja Hleðslugarðinum eru öflugar, 240 kW og eru þær afar þægilegar í notkun. Á stöðvunum er góður upplýsingaskjár sem gerir alla upplifun frábæra og hægt er að velja leiðbeiningar á íslensku og öðrum tungumálum. Í Hleðslugarðinum var aðgengi fyrir öll haft í algeru fyrirrúmi.

Hæstu vegatollarnir verða á morgnana og síðdegis

Eins og flestum er kunnugt var nýr uppfærður samgöngusáttmáli kynntur í síðustu viku. Þar kom meðal annars fram að frá og með árinu 2030 er gert er ráð fyrir tekjum af umferð eða annarri fjármögnun ríkisins. Stjórnvöld vinna að nýrri nálgun á fjármögnun vegakerfisins sem innleidd verður í skrefum á næstu árum.Umferðar- og flýtigjöld er hluti af samgöngusáttmálanum og telur Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, fyrirhugaða innheimtu vegatolla á höfuðborgarsvæðinu stórlega vanhugsaða. Áætlaður kostnaður við sáttmálann er um 311 milljarðar sem hefur hækkað umtalsvert frá upprunalegum sáttmála sem gerður vará haustmánuðum 2019. Verður fjár­fest fyr­ir 14 millj­arða ár­lega til árs­ins 2029 og frá ár­inu 2030 fyr­ir 19 millj­arða til árs­ins 2040.

Nammi Box – einstaklega ódýr rafbíll fyrir Evrópu

Kínverski rafbíllinn Nammi Box gæti haft töluverð áhrif á evrópska rafbílamarkaðinn á næstu árum. Miðað útsöluverð bílsins má gera ráð fyrir sterkum viðbrögðum frá framleiðendum samkeppnisbíla. Einn helsti samkeppnisbíllinn er Citroën ë-C3 sem í ódýrustu útgáfunni kostar um 3.000 svissneskum frönkum (CHF) eða um 500 þúsund krónum meira en Nammi Box í Sviss.

Litlar breytingar í nýskráningum fólksbifreiða

Þróunin í nýskráningum fólksbifreiða hefur verið með svipuðum hætti síðustu mánuðina. Nýskráningar fram að 16. ágúst voru 38,3% færri en á sama tíma í fyrra. Alls eru nýskráningar nú 7.435 en voru 12.057 á sama tíma á síðasta ári. Bifreiðar til ökutækjaleiga erum um 60% en til almennra notkunar 40%.

Styttri ferðatími, minni tafir og aukið umferðaröryggi

Heild­ar­kostnaður við nýj­an uppfærðan sam­göngusátt­mála á höfuðborg­ar­svæðinu verður 311 millj­arðar. Mikla­braut fer í göng en ekki stokk og fram­kvæmd­ir við Foss­vogs­brú og þar með borg­ar­línu fara í gang mjög fljót­lega. Sæbraut verði lögð í stokk í stað fyrri áforma um ein mislæg gatnamót. Þetta kom fram á kynn­ing­ar­fundi í dag um upp­færðan sam­göngusátt­mála.

Evrópubúar eru almennt jákvæðir gagnvart rafbílum

Umfangsmikil könnun á vegum European Alternative Fuels Observatory, EAFO, sem heyrir undir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sjá nánar hér: https://alternative-fuels-observatory.ec.europa.eu/consumer-portal/consumer-monitor, var kynnt í sumar. Könnunin var framkvæmd í 12 aðildarríkjum Evrópusambandsins og leiðir í ljós að Evrópubúar eru almennt jákvæðir gagnvart því að skipta yfir í rafbíl. Um 19.000 neytendur svöruðu könnuninni sem gerir hana að einni umfangsmestu viðhorfskönnun veraldar um rafbílavæðingu.