Öflugar hleðslustöðvar á Selfossi

Orka náttúrunnar og GTS handsöluðu samkomulag um að viðskiptavinir ON geti nýtt sér nýjar hleðslustöðvar á lóð GTS á Selfossi sem opnaði í haust. Hleðslustöðvarnar hjá GTS eru öflugur og í alfaraleið við bæjarmörkin. Með þessu bætast við tuttugu tengi í hleðslunet Orku náttúrunnar sem sífellt er verið að vinna í að stækka og þétta.

Orka náttúrunnar fagnaði tíu ára afmæli sínu á síðasta ári og sömuleiðis er rúmur áratugur frá því að fyrirtækið tók í notkun fyrstu hraðhleðsluna hér á landi fyrir rafbílaeigendur.

Síðan hefur uppbygging innviða fyrir orkuskiptin staðið yfir og hefur ON leitt þá vegferð frá upphafi. Að undanförnu hefur fyrirtækið verið eftirsóttur samstarfsaðili sveitarfélaga við að setja upp og reka hleðslubúnað við bílastæði sem þau hafa til umráða.

Næsta skref í uppbyggingu innviða hjá ON er að styðja við rafvæðingu í ferðaþjónustu og vöruflutninga. Samstarfið við GTS er því mikilvægt skref í þá átt en í ferðaþjónustunni liggja tækifæri til frekari þróunar, með það að markmiði að styðja við umhverfisvænni samgöngur og sjálfbæra orkuöflun á Íslandi.