Stærstur hluti veganetsins er á ábyrgð Vegagerðarinnar
Þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar eru eykst hættan á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðingu. Holur hafa nú þegar verið að koma fram á götum höfuðborgarsvæðisins og víða um land á síðustu dögum. Eins og dæmin hafa sannað í gegnum tíðina hafa bílar orðið fyrir tjóni við að aka ofan í djúpar holur.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að ábyrgð veghaldara vegna tjóns í kjölfar skemmda á vegum minni á Íslandi en í nágrannalöndum. Þar séu ekki fyrirvarar eins og í íslenskum lögum um að ökumenn hafi sýnt af sér vangá eða eitthvað slíkt verði tjón við það að keyra ofan í holu. Ábyrgðin á vegarhaldi sé algjörlega í höndum veghaldara. Þetta kom fram í viðtali við Runólf í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
„Stærstur hluti veganetsins er á ábyrgð Vegagerðarinnar,“ segir Runólfur en vegir í Reykjavík á ábyrgð borgarinnar og í Kópavogi á ábyrgð Kópavogsbæjar.Hann telur að eftirlit yrði betra ef þessir fyrirvarar væru fjarlægðir úr lögum.
Vegirnir eru lífæð samfélagsins
„Það er sérvakt með helstu vegum og fjölförnustu leiðum til að tryggja það að það komi ekki eitthvað áfall upp sem er á ábyrgð veghaldara,“ segir Runólfur og á þá við fjártjón eða slys. Með því að fjarlægja fyrirvara í lögum væri allir ábyrgðaraðilar meira á tánum.
„Vegirnir eru lífæð samfélagsins. Það þarf að tryggja sem mest öryggi á vegum. Umferðin er einn hættulegasti vettvangur okkur. Þetta er mikil ábyrgð og ábyrgin er fyrt og fremst hjá kjörnum fulltrúum. Það þarf að tryggja að það sé sem best að þessu staðið,“ segir hann.
Hann segir þessa umræðu endurtekna árlega. Það eigi eftir að ræða þetta lengur. Það megi búast við frekari umhleypingum og þá eigi fleiri holur eftir að myndast á vegunum.
„Þetta mun halda áfram fram á vorið. Það verða umhleypingar næstu vikur og mánuði og þetta er ófremdarástand.“
Hann segir geta orðið alvarleg slys fyrir utan munatjónið sem getur orðið. Fjöldi hafi tilkynnt tjón til FÍB.
„Rifin dekk, með brotna gorma eða ónýta dempara og svo framvegis. Þetta getur valdið verulegu tjóni og veseni.“
Hann segir fólk geta tilkynnt til FÍB ef það sér holu. Það geti gert það á staðnum eða síðar. Hægt er að skrá GPS hnitið. Þannig sé búið að tilkynna holuna til veghaldara.