Strætó er ekki afkastameiri en einkabíllinn

Því er oft haldið fram að fullur strætisvagn afkasti meiru en einkabíllinn vegna þess að strætóinn tekur aðeins brot af plássinu á götunum sem einkabílar taka með jafn marga farþega. En þá gleymist að taka með í reikninginn að bílarnir eru allir á ferð og nota plássið því í afar skamman tíma.

Einfalt reikningsdæmi sýnir að einkabíllinn hefur vinninginn yfir strætisvagninn.

Gefum okkur tveggja akreina götu með 40 km hámarkshraða og að allir keyri á þeim hraða í eina mínútu. Segjum að strætó aki þessa götu með 50 farþega á einni mínútu. Á sömu einu mínútunni geta 150* einkabílar farið þessa leið á 40 km hraða. Þó aðeins einn farþegi sé í hverjum einkabíl, þá er bíllinn samt þrisvar* sinnum afkastameiri en strætóinn. Til að strætó nái einkabílnum í afköstum þyrftu þrír* strætisvagnar með 50 farþega hver að vera á ferðinni þessa einu mínútu.

*Fréttin hefur verið leiðrétt og uppfærð með réttum tölum. Nánari upplýsingar hér.