Tesla innkallar nánast flesta Cybertrucks í Bandaríkjunum

Í tilkynningu frá bandaríska bílaframleiðandanum Tesla segir að fyrirtækið væri að innkalla nánast alla Cybertrucks í Bandaríkjunum til að laga svokallaða ytri plötu sem gæti losnað við akstur. Innköllunin nær til rúmlega 46.000 ökutækja sem framleidd voru frá nóvember 2023 til 27. febrúar á þessu ári.

Innköllunin tekur á áhættu þess að ryðfrír stálkantur geti losnað frá ökutækinu og orðið að vegahættu sem eykur slysahættu. Þjónusta Tesla mun skipta út brautarsamstæðunni fyrir nýja sem stenst kröfur um endingu að því er fram kemur í tilkynningu frá Tesla.

Innköllunin gæti reynst bakslag fyrir Tesla, en hlutabréf fyrirtækisins hafa lækkað um nærri helming á þessu ári þar sem rafbílaframleiðandinn glímir við aukna samkeppni, úrelta vörulínu og mótmæli í garð forstjórans Elons Musk við að hafa umsjón með niðurskurði á alríkisútgjöldum í Hvíta húsi Trumps.

Hlutabréf Tesla, sem fengu í fyrstu kipp eftir kosningar vegna tengsla Musk við Donald Trump Bandaríkjaforseta, hafa fallið um næstum 42% á þessu ári.

Greinendur hafa bent á breytingu á viðhorfi til rafbílaframleiðandans meðal núverandi viðskiptavina og mögulegra nýrra kaupenda, þar sem viðbrögð gagnvart vörumerkinu eins og mótmæli við Tesla verslanir um öll Bandaríkin og sölubann koma fram.

Árið 2024 var Tesla efst á lista yfir innkallanir í Bandaríkjunum þar sem ökutæki þeirra voru 5,1 milljónir innkallana, samkvæmt BizzyCar, fyrirtæki sem sérhæfir sig í stjórnun innkallana. Hins vegar voru flest vandamál tengd bílum vörumerkisins yfirleitt leyst með hugbúnaðaruppfærslum.