98 hleðslustöðvar ON væntanlegar í Kópavog

Hleðslustöðvar Orku náttúrunnar við Hálsatorg í Hamraborg voru teknar í notkun í vikunni og eru þær fyrstu af 98 hleðslustöðvum á 14 stöðum í Kópavogsbæ sem verða settar upp í haust.

Orka náttúrunnar og Kópavogsbær undirrituðu samning um uppsetningu og rekstur hleðslustöðva fyrir rafbíla á fjórtán stöðum í Kópavogi í kjölfar útboðs. Með þessu er sveitarfélagið að gera íbúum Kópavogs kleift að skipta áhyggjulaust yfir í rafbíl og mæta eftirspurn sem er nú þegar til staðar.

Hverfahleðslur ON er mikilvægur þáttur í orkuskiptum í samgöngum og með nýjum vegvísi stjórnvalda er settur kraftur í þá átt að eingöngu hreinorkubílar sem nýta innlenda, umhverfisvæna orku verði fluttir inn til landsins.

Á næstu vikum verða sett upp 98 tengi í Kópavogi á 14 staðsetningum, m.a. við skóla, sundlaugar og bókasöfn og munu þau því nýtast Kópavogsbúum og öðrum rafbílanotendum vel á meðan skroppið er til dæmis í sund eða á bókasafnið.

Nú þegar eru komin upp tengi við Fífuna, Fagralund, sundlaug Kópavogs og Hálsatorg. Með þessari fjölgun eru Hverfahleðslutengi ON á landinu öllu orðin um 650 og gerir ON ráð fyrir að Kópavogsbúar geti hlaðið rafhlöðurnar á öllum nýju staðsetningunum í október.