Að gefa startstraum

Nú er hávetur og kalt í veðri og margir bílar komast ekki í gang vegna þess að virkni rafgeymisins er stórskert vegna kuldanna. Hjá FÍB Aðstoð hefur verið og er enn hreinlega brjálað að gera við að gefa straum og starta bílum um allt höfuðborgarsvæðið og á öðrum þjónustusvæðum FÍB Aðstoðar. Jafnframt eru fjöldamargir að hjálpa náunga sínum og gefa straum með því að leiða startkapla milli bíla. En það þarf aðgát við það að gefa straum. 

Nýir og nýlegir bílar eru með ýmsum flóknum tölvu- og rafeindabúnaði sem getur verið viðkvæmur fyrir snöggum breytingum á spennu í rafkerfinu. Þessvegna er það mikilvægt að þegar gefa á bíl með tóman rafgeymi startstraum með startköplum milli bíla að tengja kaplana milli þeirra í réttri röð. Hér koma leiðbeiningar um hvernig á að gera þetta þannig að ekki verði hætta á skemmdum sem kostað geta stórfé að lagfæra.

1.  Þegar startkaplar eru tengdir milli bíla og annar bíllinn er með fullhlaðinn rafgeymi en hinn með tóman, neistar á milli þegar 4. og síðasta kapalklemman er tengd (sjá teikninguna hér að neðan). Á því augnabliki sem neistinn myndast getur orðið allt að 3000 volta yfirspenna sem er stórháskaleg fyrir rafeindabúnað bílsins.

2.  Áður en startkaplarnir eru tengdir er í öryggisskyni skynsamlegt að fjarlægja lyklana úr kveikilásum beggja bílanna til að öruggt sé að ekki sé svissað á og kveikikerfi þeirra þar með örugglega ekki „opin.“

3.   Þegar startkaplarnir eru tengdir skal síðasta kapalklemman (nr 4) látin bíta sig fasta við ómálaðan málm, t.d. boltahaus, eins langt frá geyminum og kostur er. Ástæðan er sú að í tómum rafgeymi getur verið bráðeldfimt vetni sem snögg-kviknar í og geymirinn springur hreinlega við það að neisti myndast þegar kapalklemma nr 4 er tengd of nærri geyminum. 

4.  Þegar startkaplarnir eru tengdir við báða bílana skal setja hjálparbílinn (þann sem gefur strauminn) í gang og síðan skal starta straumlausa bílnum. 

5.   NB! Mesta hættan á því að skemma rafkerfin í bílunum við straumgjöf  skapast þegar aftengja skal startkaplana. Þegar bíllinn með tóma geyminum er kominn í gang skulu startkaplarnir vera tengdir saman um stund til þess að jafna út spennumismuninn milli tóma og fulla geymisins. Þetta skal gera til að forðast að neisti og yfirspenna hlaupi út í „galopið“ rafkerfið eftir að búið er að gefa straum og skemmi eða eyðileggi rafeindabúnað annarshvors eða beggja bílanna.

FÍB mælir með: Notið einvörðungu startkapla með yfirspennuvörn. Þeir eru dýrari en venjulegir kaplar en miklu öruggari.

http://www.fib.is/myndir/Startkaplatenging.jpg

Skýringar við teikningu:

Atriði 1-4.  Vinnuröðin á því hvernig tengja skal startkaplana.

Atriði 5-8.  Vinnuröðin á því hvernig aftengja skal startkaplana eftir að búið er að gefa straum.  (Aftengingin er öfug vinnuröð tengingarinnar).