Afkastameiri hraðhleðslustöð opnuð við Varmahlíð
Orka náttúrunnar hefur uppfært hraðhleðslustöð sína í Varmahlíð í nýjustu kynslóð hraðhleðslustöðva. Nýja stöðin mun geta boðið allt að 150 kW hleðslu og getur þjónað tveimur bílum í einu sem deila þá aflinu að hámarki 75kW á hvort tengi, en það fer eftir hleðslugetu bílsins.
„Stöðin í Varmahlíð er þriðja stöðin sem við setjum upp í ár. Þessar nýju stöðvar eru í raun algjör bylting fyrir rafbílaeigendur því nú tekur enga stund að hlaða,“ segir Hafrún Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hleðslunets ON og segir að hraðhleðslustöðin í Varmahlíð muni bjóða uppá tvö CSS tengi og eitt Chademo.
Fyrst um sinn verður aflið í Varmahlíð þó takmarkað við 138 kW þar sem leggja þarf aflmeiri heimtaug að stöðinni en vonast er til að það leysist sem fyrst.
Á sjötta tug hraðhleðslustöðva ON hringinn í kringum landið
„Við höfum þegar pantað tíu 150 kW hraðhleðslustöðvar sem við stefnum á að setja upp í ár og næsta ári en Covid 19 setti stórt strik í reikninginn og seinkaði afhendingum verulega,“ segir Hafrún.