Áfram er smurt á skatta og gjöld Icelandair og Iceland Express
Skattar og gjöld á flugferðir hafa ekkert breyst hjá Icelandair og Iceland Express á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá því FÍB blaðið vakti athygli á grunsamlega samstilltri verðlagningu þeirra. Einkum vakti FÍB athygli á því að flugfélögin taka tvöfalt til þrefalt hærri upphæðir í skatta og gjöld en þau raunverulega skila til flugvalla og yfirvalda.
Reyndar hafa skattar og gjöld hækkað sums staðar hjá báðum félögunum, eins og t.d. milli Keflavíkur og London. Nú tekur Icelandair 9.860 kr. í þessi gjöld og Iceland Exress 9.590 kr. Þess má minnast að fulltrúi Icelandair sagði í útvarpsviðtali í nóvember síðastliðnum að hærra eldsneytisverð útskýrði helminginn af þessum upphæðum. Frá því í ágúst síðastliðinum hefur verð á þotueldsneyti lækkað um nærri 25% og því hefðu skattar og gjöld félagsins milli Keflavíkur og London átt að hafa lækkað um þúsund krónur, úr tæpum níu þúsund í tæpar átta þúsund. En þess í stað hefur gjaldið hækkað um þúsund krónur. Icelandair er því að hagnast tvö þúsund krónum meira af hverjum farmiða til London heldur en það gerði í september.
Þær ferðaskrifstofur sem bjóða upp á stakar flugferðir til útlanda að sumarlagi haga sér með eðlilegum hætti í þessum efnum. Þannig innheimta Heimsferðir 4.190 kr. í flugskatta og Plúsferðir (Sumarferðir) 4.290 kr. Þessar upphæðir eru í samræmi við það sem félögin þurfa raunverulega að skila sem sköttum og gjöldum.
Áhrifamáttur samkeppnisyfirvalda gagnvart þessu háttalagi flugfélaganna virðist enginn. Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur skýrt frá því í fjölmiðlum að hann hafi boðað fulltrúa flugfélaganna á sinn fund og óskað eftir því að þau hagi innheimtu skatta í samræmi við þá skatta sem þau skila. Það hefur engu breytt.