Aftur dregur úr umferðinni á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin um lylkilsnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu dróst meira saman í síðustu viku en vikurnar tvær á undan. Umferðin í viku 21 var minni en bæði í viku 20 og í viku 19. í samanburði við sömu viku fyrir ári dróst umferðin saman um nærri 12 prósent sem er nokkuð meiri samdráttur en síðuðstu vikur á undan. Erfitt er að meta hvað veldur en líklega hefur uppstigningadagur áhrif af því fram kemur í upplýsingum frá Vegagerðinni.
Eftir að dregið hefur jafnt og þétt úr samdrætti í umferð á höfuðborgarsvæðinu síðustu vikur dró aftur í sundur með vikum þessa árs og því síðasta, í umferð yfir 3 lykilmælisnið, þ.e.a.s. umferðin dróst meira saman í síðustu viku. Í síðustu viku, eða viku 21, mældist 11,5% samdráttur.
Þetta er ef til vill áminning um það að umsvif samfélagsins eru ekki komin í fyrra horf, enda varla von á því. Þessi ,,litli” samdráttur í viku 20 kom eiginlega svolítið á óvart nema skýringin felist í því að uppstigningadagur í ár bar upp á þessa viku. Svo er ekki ósennilegt, þegar svona stutt tímabil eru borin saman, að mismunur í umferð þessa og síðasta árs, eigi eftir að sveiflast til og frá.
Óvissan framundan, í umferðinni, er sumarumferðin. Munu Íslendingar ferðast innanlands í meira mæli en áður? Þá er mögulegt að umferð geti aukist yfir 16 lykilteljara á Hringvegi en á móti gæti hún þá dregist saman um lykilsnið á höfuðborgarsvæðinu. Það verður því áhugavert að fylgjast með þróun umferðar á næstu vikum.
Mismunur eftir mælisniðum, í viku 21:
Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk -19,4%
Reykjanesbraut við Dalveg -7,1%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku -8,4%