Áhrifin af Covid vara ennþá
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í viku 23 reyndist fimm prósentum minni en í sömu viku fyrir ári. Umferðin minnkar því aftur en í viku 22 var hún nánast sú sama og fyrir ári. Áhrifin af Covid-19 og samdrætti í efnahagslífinu er þannig greinileg enn þá en Vegagerðin hefur bent á sambandið á milli hagvaxtar og umferðar, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu.
Aftur dregur í sundur með umferðinni á síðasta ári og árinu í ár, fyrir þrjú lykilmælsnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, en umferðin í viku 23 reyndist tæplega 5 prósentum minni en í sömu viku á síðasta ári.
Núna mældist samdráttur í öllum sniðum og hlutfallslega mest á Hafnarfjarðarvegi eða rúmlega 10 prósent en minnst á Vesturlandsvegi eða um tæplega 4 prósent. Það kemur Vegagerðinni ekki alveg á óvart að umferðin sé ennþá undir því sem hún var á síðasta ári þar sem efnahagslífið hefur ekki náð fyrri styrk, meiri umferð hefði hins vegar frekar komið á óvart.
Ekki er ólíklegt að svona verði þetta eitthvað áfram en hversu lengi fer sjálfsagt eftir því hvenær umsvif samfélagsins komast í fyrra horf, því eins og Vegagerðin hefur sýnt fram á, þá er mikil fylgni á milli umferðar og landsframleiðslu (hagvaxtar).
Hlutfallslegur mismunur eftir mælsniðum í viku 23:
Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk -10,3%
Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi -6,0%
Vesturlandsvegur, ofan Ártúnsbrekku -3,9%