Aldrei verið meiri umferð í febrúar á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um 5,6 prósent í febrúar miðað við sama mánuð fyrir ári síðan. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri í febrúar. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 7,4 prósent. Útlit er fyrir að umferðin í ár gæti þá aukist um fimm prósent. Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Umferðin um 3 lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 5,6% í nýliðnum mánuði borið saman við sama mánuð á síðasta ári.
Mest jókst umferð um mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi eða um rúmlega 8% en minnst mældist aukningin um mælisnið á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um tæp 3%.
Meðalumferð á sólarhring, um mælisniðin þrjú, hefur aldrei verið meiri í febrúarmánuði frá upphafi samantektar. Nú hefur meðalsólarhringsumferð í febrúar vaxið, að jafnaði, um 2,4% á ári frá árinu 2005.,Frá áramótum hefur umferðin á höfuborgarsvæðinu aukist um 7,4% miðað við sama tímabil á síðasta ári.
Þá segir ennfremur að umferð í öllum vikudögum jókst miðað við sama mánuð á síðasta ári. Mest jókst umferðin á fimmtudögum eða um 14,4% en minnst á sunnudögum eða um 0,3%. Í nýliðnum mánuði var mest ekið á fimmtudögum og minnst á sunnudögum.
Þegar tveir fyrstu mánuðir ársins eru liðnir benda líkur til þess að umferðin á höfuðborgarsvæðinu gæti aukist um 5% m.v. síðasta ár. Þessi spá er nokkuð í takt við hagvaxtaspá Seðlabanka Íslands, sem spáir 5,3% hagvexti árið 2017, en Vegagerðin hefur bent á mikla fylgni milli þróun umferðar á höfuðborgarsvæðinu og hagvaxtar (91% milli áranna 2005 – 2016).