Annar umferðarmesti júlí frá því mælingar hófust
Umferðin í júlí um lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum reyndist um prósenti minni en í sama mánuði í fyrra. Samt er þetta annar umferðarmesti júlí frá því mælingar af þessu tagi hófust. Reikna má með að umferðin í ár verði ríflega 1,5 prósenti meiri en árið 2021 að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.
Umferðin í nýliðnum júlí, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, reyndist minni en von var á, sé tekið mið af júní umferð, og mældist hún tæpu einu prósenti undir því sem hún var í júlí í fyrra. Engu að síður er þetta næst stærsti júlí mánuður frá upphafi mælinga.
Umferð dróst saman á öllum svæðum utan Suðurlands og um teljara í grennd við höfuðborgarsvæðið. Mestur samdráttur mældist um Austurland eða rúmlega 21% samdráttur, miðað við sama mánuð á síðasta ári.
Mest jókst umferð á lykilteljara vestan Hvolsvallar eða um tæp 9% og er það trúlega vegna landsmóts hestamanna, þar í grennd. Mesti samdráttur mældist um teljara á Möðrudalsöræfum eða rétt rúmlega 50% samdráttur.
Nú hefur umferð aukist um tæp 3%, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferð vaxið á Austurlandi en minnst í grennd við höfuðborgarsvæðið en þar mælist örlítill samdráttur.
Frá áramótum hefur minnst verið ekið á laugardögum en mest á föstudögum. Aukning er í umferð á öllum vikudögum utan mánudaga, en þar mælist rúmlega hálft prósent samdráttur.