Askja innkallar Kia Optima
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf um að innkalla þurfi 11 Kia Optima bifreiðar af árgerðum 2019 og 2020. Ástæða innköllunarinnar er að hugbúnaðarvilla í MFC myndavél sem getur valdið truflunum á öryggisbúnaði bifreiðanna.
Viðgerð felst í uppfærslu á hugbúnaði og tekur um það bil klukkustund. Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina símleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.