Bætt umferðaröryggi á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargöt
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að veita heimild fyrir að halda áfram undirbúningi umferðaröryggisúrbóta á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu, sem og á strætóstöðvum og gönguþverun á Njarðargötu við Sturlugötu.
Markmið breytinganna er að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda með eftirfarandi aðgerðum:
- Hækka gönguþveranir yfir framhjáhlaup upp í hæð gangstétta til að bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda og draga úr hraða bíla umferðar.
- Bæta götulýsingu til að auka sýnileika vegfarenda.
- Uppfæra strætóstöðvar við Sturlugötu í samræmi við algilda hönnun og bæta öryggi gönguþverana.
- Setja áherslufleti og leiðarlínur fyrir sjónskerta.
- Gera úrbætur á gönguleiðum í umferðareyjum til að draga úr fallhættu.
Verkefnið er samvinnuverkefni með Vegagerðinni sem er veghaldari bæði Hringbrautar og Njarðargötu.