Bandarísk stjórnvöld hyggjast draga úr reglum um eldsneytissparnað ökutækja

Nýskipaður samgönguráðherra Bandaríkjanna, Sean Duffy, hefur fyrirskipað tafarlausa endurskoðun á reglum um eldsneytissparnað ökutækja, í samræmi við orkustefnu Trump stjórnarinnar.

Líkt og í fyrri forsetatíð Trump verður áhersla lögð á að efla framleiðslu á olíu, gasi og kolum m.a. á vernduðum svæðum. Dregið verður úr umhverfisreglum og loftslagsaðgerðum. Undir það fellur endurskoðun á eldsneytissparnaðarkvöðum ökutækja.

Fyrsta embættisverk Duffy var að undirrita minnisblað þar sem hann felur Umferðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NHTSA) að breyta gildandi reglum um eldsneytislosun og mengun ökutækja í anda nýrrar stefnu stjórnvalda. Breytingarnar myndu taka til ökutækja frá árgerð 2022 og áfram.

„Við viljum tryggja að reglugerðir í samgöngugeiranum séu í samræmi við stefnu okkar um sjálfbæra orkunotkun og atvinnuþróun,“ sagði Duffy í yfirlýsingu. Hann bætti við að endurskoðunin væri hluti af margvíslegum aðgerðum stjórnvalda til að draga úr „óþarfa og íþyngjandi regluverki“.

Umhverfissinnar og aðilar í bílaiðnaðinum hafa gagnrýnt fyrirhugaðar aðgerðir og telja þær auka mengun og draga úr þróun í framleiðslu rafknúinna- og sparneytinna ökutækja í Bandaríkjunum. Talsmenn bílaframleiðenda eru tvístígandi, sumir kalla eftir meiri sveigjanleika í regluverkinu en aðrir hafa þegar fjárfest verulega í nýrri tækni með orkuskipti í huga og vilja halda þeirri þróun áfram.

Ekki liggur fyrir hvenær NHTSA mun ljúka endurskoðuninni, en embættismenn hafa gefið í skyn að breytingarnar gætu tekið gildi á næstu mánuðum.