Bílastæði fyllast hratt yfir sumartímann á Keflavíkurflugvelli

Bílastæði við Keflavíkurflugvöll (KEF) verða vel nýtt í sumar. Þau sem hyggjast leggja leið sína í gegnum flugvöllinn í júní, júlí og ágúst eru hvött til að bóka bílastæði við flugstöðina fyrir fram til að tryggja bílnum stæði. Því fyrr sem stæðið er bókað því betri kjör fást.

Mikill fjöldi gesta yfir sumarið

Gestir eru hvattir til að mæta snemma fyrir flug í sumar þar sem töluverð umferð verður um flugvöllinn. Farþegaspá KEF áætlar að samtals muni 8,5 milljónir gesta fara um völlinn á árinu og að árið í ár verði það þriðja stærsta í sögu flugvallarins.

Nýtt bílastæðakerfi var tekið í notkun síðasta sumar sem eykur þægindi gesta við aðkomu á flugvöllinn. Bókunarferlið er enn það sama og áður en bílastæðið er áfram bókað á vefsíðu KEF.

Nýja bílastæðakerfið virkar þannig að ekið er inn og út af bílastæðunum, hliðin opnast sjálfkrafa og myndavél tekur mynd af bílnúmerinu. Ekki er lengur þörf á að taka miða, skanna QR-kóða eða nota greiðslukort til að opna hliðin á bílastæðunum.

Forðist aukinn kostnað

Til að tryggja bílnum stæði og fá hagstæðasta verðið er hægt að bóka það á vefsíðu KEF. Því fyrr sem stæðið er bókað, því betri kjör fást.

Aðrar greiðsluleiðir í boði fyrir gesti eru með bílastæðaforritum, Autopay og Parka, auk þess sem sjálfsafgreiðslukassar eru áfram til staðar inni í flugstöð. Ef engin þessara greiðsluleiða er notuð kemur reikningur samkvæmt gjaldskrá í heimabanka bílaeigenda, að viðbættu 1.490 króna þjónustugjaldi. Hægt er að forðast þjónustugjaldið með því að greiða fyrir stæðið með bílastæðaappi allt að 48 klukkustundum eftir að bílastæðið er yfirgefið.