Bíll ársins á Íslandi 2013
Nú stendur yfir val á Bíl ársins á Íslandi. Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, sér um valið sem fór fyrst fram vegum félagsins árið 2004. Níu bílar eru komnir í úrslit í valinu og verður tilkynnt um bíl ársins föstudaginn 23. nóvember næstkomandi.
38 nýir fólksbílar og jeppar voru tilnefndir og eftir prófanir eru nú níu bílar eftir í úrslitum. Keppt er í þremur flokkum, fólksbílum, jeppum og jepplingum og vistvænum bílum.
Bílarnir níu sem komust í úrslit eru:
Audi A6,Mercedes-Benz A,Volvo V40,Audi Q3,Hyundai Santa Fe,Range Rover Evoque,Lexus GS 450h,Opel Ampera ogPeugeot 508 RXH.Þeir sem standa að valinu eru blaðamenn sem í gegnum tíðina hafa fjallað um bíla í íslenskum fjölmiðlum. Félagið stóð fyrst fyrir vali á Bíl ársins 2004. Í fyrra var það VW Passat Metan sem var kjörinn Bíll ársins. Á myndinni með þessari frétt eru bílablaðamennirnir Guðjón Guðmundsson, Malín Brand, Finnur Thorlacius og Róbert Róbertsson.