BL ehf. innkallar 109 BMW bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um að innkalla þurfi BMW bifreiðar af árgerðunum 2000 til 2003.  Um er að ræða 109 bifreiðar af 3 series E39 og 5 series E53. Ástæða innköllunarinnar er sú að loftpúðar bifreiðanna gætu verið gallaðir. Um er að ræða hluta af alþjóðlegri innköllun sem rekja má til loftpúðaframleiðandans Takata.  Við innköllun eru loftpúðar skoðaðir og skipt um ef þurfa þykir .

 

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.

 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.