Blæðingar í vegaklæðingu – fyrri viðbragsáætlun of seinvirk
Á morgunfundi sem Vegagerðin stóð fyrir í morgun var umfjöllunarefnið blæðingar sem geta orðið í vegklæðingu og malbiki. Á fundinum var rætt um mismunandi tegundir blæðinga, ástæður þeirra og viðbrögð Vegagerðarinnar þegar þær koma upp. Flutningageirinn kom sjónarmiðum sínum varðandi vegblæðingar á framfæri á fundinum.
Þetta vandamál hefur öðru hverju á síðustu árum verið að koma upp en náði hámæli undir lok síðasta árs vegna tjörublæðinga á þjóðveginum norður til Akureyrar. Vegklæðning safnaðist þá saman í hjólskálum bílanna og við það brotnuðu stuðarar bílanna. Á þriðja hundrað bifreiða urðu fyrir lakkskemmdum. Heildartjónið er talið nema um 30 milljónum króna sem Vegagerðin mun þurfa að greiða.
Á fundinum kom fram að blæðingar að sumarlagi verða helst á heitum sólríkum dögum. Miklar bæðingar geta valdið varanlegum skemmdum á klæðingu. Dæmi um slíkt er ekki bara að koma upp hér á landi en á fundinum var bent á að slík vandamál er þekkt víða um heim eins og á Nýja Sjálandi, Bandaríkjunum og í Svíþjóð.
Blæðingar aftur á móti að vetrarlagi virðast koma upp um lítil augu í klæðingunni. Dekk þungra bíla pumpa vatni ofan í klæðinguna. Blæðingar geta átt sér stað í öllum gerðum klæðinga. Fram kom einnig eins og dæmin hafa sannað að miklar blæðingar geta valdið varanlegum skemmdum á ökutækjum.
Vetrarblæðingar hafa lengi verið til vandræða og tilgáta um orsök eru endurteknar breytingar á hita um frostmark og álag vegna umferðar. Bent var á að vetrarblæðingar séu sjaldgæfar en alvarlegt ástand hefði skapast í desember sl. og sambærilegt tilfelli hefði komið upp 2013.
Á fundinum kom fram að bæðingar geta orðið vegna mistaka í framleiðslu og eða útlagningu. Of mikið bik er í blönduninni eða of mikil þjöppun á verkstað sem getur skapað mikla hættu vegna hálku þegar yfirborðið er blautt. Unnið er að endurskoðun á öllu verklagi við framkvæmdina til að koma í veg fyrir að slíkt ástand skapist. Allir nýlagnakaflar verða viðnámsmældir áður en umferð verður hleypt á þá. Umferð verði ekki hleypt á kaflann ef viðnámsskilyrði eru ekki uppfyllt.
Verið er að leggja lokahönd á að endurskoða viðbragsáætlun vegna blæðinga í klæðingum að vetri. Fyrri viðbragsáætlun hafi reynst of seinvirk. Í framhjáhlaupi má greina frá því að Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, hefur margsinnis bent á seinvirknina í kerfinu að þessu leytinu til.
Frummælendur á fundinum í morgun voru Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, Birkir Hrafn Jóakimsson, verkefnastjóri í framkvæmdadeild Vegagerðarinnar, Pétur Pétursson hjá PP ráðgjöf, Ingi Þór Hermannsson, forstöðumaður Samskipa innanlands og Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar.