Bloggsíða helguð umferðaröryggismálum
Birgir Þór Bragason.
Birgir Þór Bragason kvikmyndagerðarmaður hefur opnað ágæta bloggsíðu sem sjá má hér.
Margir þekkja Birgi sem myndatöku- og dagskrárgerðarmanninn úr íslenska mótorsportinu og mikinn og einlægan áhugamann um umferðaröryggismál með mikla þekkingu á þeim málaflokki. Bloggsíða Birgis er einmitt að stærstum hluta helguð umferðaröryggismálum.
Umferðaröryggismál skipta okkur öll miklu máli og því er framtak Birgis bæði þarft og áhugavert.