Brimborg innkallar Volvo 338 bifreiðar
Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg ehf um að innkalla þurfi 338 Volvobifreiðar af ýmsum gerðum. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að rannsóknir hafa leitt í ljós að sjálfvirk helmlun getur við ákveðin skilyrði ekki virkað sem skyldi vegna villu í hugbúnaði.
Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina bréfleiðis.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.
Þess má geta að Volvo innkallaði yfir 700 þúsund bifreiðar af sömu ástæðu um allan heim í síðustu viku.