Brúar­viðgerð­ir hafnar á ný

Viðgerðir á brúnni yfir Elliðaár við Árbæjarstíflu eru hafnar á ný. Stutt hlé var gert vegna veiðitímabilsins í Elliðaám en áætlað er að viðgerðum ljúki fyrir lok október.

Á meðal þess sem verður gert er að bora teina inn í landstöpla, smíðuð verða mót og steypt. Þá verður lokið við að brjóta bríkurkant brúarinnar, smíða mót og steypa nýjan brúarkant, ásamt því að setja upp nýja ljósastaura og vegrið. Einnig verður skipt um þensluraufar á brúnni. 

Viðgerðir á brúnni eru umfangsmiklar en helstu ástæður má rekja til þess að framhliðar stöpla reyndust mikið skemmdar og kambstál var orðið tært. Þá eru þensluraufar ofan við landstöpla í lélegu ásigkomulagi og vatn hefur því lekið óhindrað niður í steypuna þar fyrir neðan. Með tímanum hefur steypan í brúarstöplunum mettast af vatni og orðið fyrir frostskemmdum sem verða nú lagaðar.

Þegar er búið að brjóta lélega steypu og fjarlægja ryðgað stál utan af um 5 metra háum landstöpli Árbæjarmegin.  Þá er búið að lyfta brúnni upp og skipta um legur á báðum landstöplum og laga í kringum þær.