Dregur úr umferðaraukningu á Hringveginum
Umferðin yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi jókst um 3,8% í nýliðnum maí mánuði. Aukning frá áramótum mælist 5,6% sem er rúmlega tvöfalt minni en á sama tíma á síðasta ári. Umferðaraukning á Hringvegi stefnir í 3,5%, sem er mun minni aukning en undanfarin ár. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.
Nú hefur umferð aukist um 5,6%, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Í maí mánuði á síðasta ári hafði umferðin aukist um 11,3% og þar áður um 16,1%, þannig að almennt séð virðist vera að hægjast á vexti umferðar miðað við undanfarin ár. Frá áramótum hefur umferðin aukist mest um Suðurland eða um 11% en minnst um Vesturland eða um 4%.
Frá áramótum hefur umferð aukist mest á mánudögum eða um 10,4% en athygli vekur að 2,6% samdráttur mælist á sunnudögum. Mest er ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.Nú stefnir í hóflegan vöxt umferðar um Hringveg eða 3,5%.