Einbreiðum brúm á Hringveginum fækkað úr 36 í 22 á næstu fimm árum
Áformað er að verja um 5,8 milljörðum króna á næstu fimm árum til að fækka einbreiðum brúm í vegakerfinu og bæta þar með umferðaröryggi. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að stefnt sé að því að einbreiðum brúm á Hringveginum fækki um nær helming á tímabilinu, og verði 22 árið 2024 í stað 36 nú. Alls fækkar einbreiðum brúm um 34 á tímabilinu.
Eitt af forgangsmarkmiðum samgönguáætlunar er að fækka einbreiðum brúm á umferðarmestu vegum landsins. Við undirbúning samgönguáætlunar forgangsraðar Vegagerðin verkefnum þ.á m. fækkun einbreiðra brúa. Við forgangsröðunina er fyrst og fremst er tekið tillit til umferðar, burðargetu, aldurs og ástands, samfellu á leiðum auk sérstakra aðstæðna séu þær uppi. Alls er 1.191 brú í þjóðvegakerfinu. Af þeim eru 677 einbreiðar, þar af eru nú 39 brýr á Hringveginum einbreiðar.
Alls eru fjórar brýr í byggingu, sem voru boðnar út árið 2019, sem munu leysa af hólmi einbreiðar brýr á Hringvegi 1. Þær eru:
- Brunná austan við Kirkjubæjarklaustur (2020)
- Kvíá í Öræfasveit (2020)
- Fellsá í Suðursveit (2020)
- Steinavötn í Suðursveit (2021)
Unnið er að því að alls sex brýr á Hringvegi verði breikkaðar til viðbótar á tímabilinu 2021–2024 miðað við fyrirhugaðar fjárveitingar. Þær eru:
- Hverfisfljót (2021)
- Búlandsá
- Gjádalsá
- Hvaldalsá
- Selá í Álftafirði
- Krossá á Berufjarðarströnd
Í tengslum við fjárfestingarátak ríkisstjórnarinnar 2020–2022 verða þessar sjö einbreiðu brýr breikkaðar:
- Hringvegur um Núpsvötn
- Stóra-Laxá á Skeiða- og Hrunamannavegi
- Bjarnadalsá í Önundarfirði á Vestfjarðavegi
- Botnsá í Tálknafirði á Bíldudalsvegi
- Hringvegur um Skjálfandafljót
- Köldukvíslargil á Norðausturvegi
- Gilsá á Völlum á Skriðdals- og Breiðdalsvegi
Margar brýr eru jafnframt tilgreindar sem sérstök verkefni eða hluti af öðrum verkefnum í fimm ára samgönguáætlun. Dæmi um slíkar framkvæmdir úr samgönguáætlun 2020-2024 eru:
- Hattardalsá á Djúpvegi (2020)
- Jökulsá á Sólheimasandi (2021)
- Hringvegur um Hornafjörð 2021-2024 (3 brýr)
- Vestfjarðavegur um Gufudalssveit 2020-2023 (4 brýr)
- Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði 2020-2024 (7 brýr)
- Þverárfjallsvegur og Skagastrandarvegur um Laxá 2021-2023 (1 brú)
Enn frekari áform eru um breikkun einbreiðra brúa á öðru og þriðja tímabili 15 ára samgönguáætlunar fyrir tímabilið 2020-2034, sem Alþingi samþykkti í sumar.