Enn slegið met í umferðinni á Hringvegi í apríl
Umferðin á Hringvegi jókst um tæplega fjögur prósent í apríl sem er heldur minni aukning en mánuðina á undan. Eigi að síður hefur ekki áður mælst meiri umferð í apríl. Umferðin hefur aukist mjög mikið það sem af er ári og má reikna með að umferðin í ár aukist um tíu prósent sem er gríðarlega mikil aukning, gangi spár eftir. Þetta kemur fram í tölum frá Vegagerðinni.
Umferðin í nýliðnum apríl jókst heldur hóflegar en hún gerði á tímabilinu janúar til mars, borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Aukningin reyndist tæp 4%, en sú aukning eins og í mánuðunum á undan, leiddi til þess að nýtt met var slegið í umferðinni í apríl á Hringveginum.
Mest jókst umferðin Suðurland eða um tæp 10% en minnst í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 1%. Af einstaka stöðum jókst umferð mest yfir teljara á Mýrdalssandi eða um 26% minnst um teljara á Geithálsi eða um 0,1%.
Frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um tæp 13%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þó slík stærðargráða sé ekki einstæmi, miðað við árstíma, er hún samt um þrisvar sinnum meiri en í meðalári. Mest hefur aukningin orðið um Suðurland, eða tæp 23% aukning, en minnst um Austurland, eða rúmlega 6% aukning.
Umferð eftir vikudögum
Umferð hefur aukist í öllum vikudögum en mest á mánudögum eða um tæp 21%. Minnst hefur umferðin aukist á sunnudögum. Umferð hefur aukist um tæplega 14% á virkum dögum en um rúmlega 11% um helgar. Að umferð aukist meira á virkum dögum en um helgar gefur vísbendingu um aukin umsvif í þjóðfélaginu. Það sem af er ári hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.