Fleiri ljóslausir en áður
Um fimmtungur allra ökutækja voru ekki með afturljós í lagi í könnun sem tryggingafélagið VÍS gerði á dögunum á ljósabúnaði bíla. Könnunin sýndi svo ekki verður um villst að ökumenn verða að huga betur að því hvernig ljósabúnaði ökutækis þeirra er háttað.
VÍS gerði könnun á ljósanotkun bíla í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík. Tæplega 11.000 bílar voru taldir og fylgst var með fram- og afturljósum. Skoðaður var munur á ljósanotkuninni í birtu og myrkri og var mikill munur þar á. Í myrkri voru 96% ökutækja með framljósin í lagi en 4% voru eineygð. Afturljós voru í lagi hjá 97% ökutækja í myrkri en 2% voru eineygð og 1% alveg ljóslaus.
Hlutallið var síðan allt annað þegar ljósanotkun var skoðuð í dagsbirtu. Þá var 94% ökutækja með framljósin í lagi, 4% eineygð og 2% alveg ljóslaus. Afturljós voru aftur á móti eingöngu í lagi hjá 82% ökutækja. 16% ökutækja voru alveg ljóslaus og 2% eineygð.
Kannanir á ljósanotkun hafa verið gerðar reglulega hjá VÍS frá 2013. Miklar breytingar hafa orðið á ljósanotkun frá fyrstu könnun. Þá voru 3% ökutækja eineygð annað hvort að framan eða aftan og ein-göngu 1% alveg ljóslaus. Frá þessum tíma hafa lög um ljósabúnað ökutækja ekki breyst hér á landi, enn gildir að við akstur vélknúins ökutækis er skylt að nota lögboðin ljós eða önnur viðurkennd ljós bæði að framan og aftan allan sólarhringinn.
Það sem hefur breyst er að dagljósabúnaður nýrri bíla er orkusparandi samkvæmt Evrópu tilskipum frá 2011 sem þýðir að afturljós margra bíla kvikna ekki fyrr en að dagsbirta er komin niður fyrir ákveðin mörk og þá um leið og aðalljós kvikna.
Því er mikilvægt að hafa í huga að ef dagljósabúnaður kveikir ekki á afturljósum þá dugar ekki að nota hann, heldur verður að hafa aðalljósin kveikt eins og fram kemur á vefsíðu VÍS um könnunina.