Flestar nýskráningar í dísilbílum fyrstu daga ársins
Nýskráningar fólksbifreiða fyrstu níu daga þessa nýja árs eru alls 194. Í samanburði við fyrstu daga ársins 2022 voru þær 245 og nemur fækkunin því rúmum 20% að því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Athygli vekur að flestar nýskráningar þessa fyrstu daga ársins eru í dísilbílum. Hlutdeild þeirra er 25,1%, rafmagnsbíla 21% og hybrid 20,5%. Tengiltvinnbílar eru í fjórða sætinu með 16,9% hlutdeild og bensínbílar 16,4%. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu en óvissa hefur ríkt á bílamörkuðum, skortur hefur verið á íhlutum og bíðtími lengst.
Langflestar nýskráningar voru í Toyota, alls 67. KIA kom næst með 17 bíla og 13 bílar voru í Hyundai og Tesla.