Formúlu 1 tímabilið hefst 2. júlí
Kappakstursáhugafólk getur loksins farið að hlakka til. Formúla 1 hefst í næstu viku. Formúlan verður eingöngu sýnd hérlendis á Viaplay, með íslenskum lýsendum. Fyrsta keppnin, verður Austurríkiskappaksturinn á Red Bull brautinni 2.–5 júlí.
Formúlu 1 tímabilið 2020 átti að hefjast í Ástralíu en Covid-19 faraldurinn batt enda á það. Síðan hafa íslenskir Formúlu 1 aðdáendur beðið spenntir eftir því að það yrði talið óhætt að hefja Formúlu 1 tímabilið á ný. Nú er loksins komið að því og mótorsport-unnendur um allan heim fagna: Formúlu 1 tímabilið hefst í Austurríki um næstu helgi, dagana 3. til 5. júlí.
Fyrsta helgin í júlí verður þannig opnun á sannkölluðu mótorsport-sumri í algjörum sérflokki. Formúla 1 stefnir á að halda um 15 til 18 kappakstra á árinu.
„Mótorsportið hefur aldrei lent í öðru eins. Yfir þriggja mánaða lokun er nú loksins yfirstaðin, og ég veit, að allir í mótorsportheiminum hlakka eins og smákrakkar til þess að Formúla 1 fari af stað í Evrópu. Eðlilegt ástand snýr aftur og ég hlakka ótrúlega til“, segir nífaldur Le Mans-sigurvegari og sérfræðingur í Formúlu 1, Tom Kristensen.
Eins og staðan er núna eru átta keppnir komnar á dagskrá fyrir þetta tímabil, en þær sem eftir eru verða settar á dagskrá eftir því sem hægt er að teknu tilliti til allra öryggiskrafna í tengslum við Covid-19 faraldurinn.
Forsvarsfólk Formúlunnar hefur af öryggisástæðum ákveðið að fyrstu keppnirnar verði án áhorfenda. Vonir standa þó til að hægt verði að opna fyrir áhorfendur síðar á tímabilinu.
Sýnt verður frá öllum Formúlu 1 keppnunum á Viaplay með íslenskum lýsendum.
Svona lítur Formúlu 1 dagskráin 2020 út, eins og hún liggur fyrir á þessari stundu:
3.–5. júlí: Austurríki (Red Bull Ring, Spielberg, Austurríki)
10.–12. júlí: Austurríki (Red Bull Ring, Spielberg, Austurríki)
17.–19: júlí: Ungverjaland (Hungaroring, Ungverjalandi)
31. júlí– 2. ágúst: Bretland (Silverstone, Englandi)
7.–9. ágúst: Bretlands (Silverstone, Englandi)
14.–16. ágúst: Spánn (Barcelona-brautin, Katalóníu, Spáni)
28.–30 ágúst: Belgía (Spa-Francorchamps, Belgíu)
4.–6. september: Ítalía (Autodromo Nazionale Monza, Ítalíu)