Frumsýning á Mazda CX-30
KYNNING: Brimborg frumsýnir glænýjan og ríkulega búin Mazda CX-30 með nýrri M-Hybrid tækni í Reykjavík og á Akureyri laugardaginn 14. september.Mazda CX-30 er glænýr bíll í jeppalínu Mazda og kemur sem viðbót við CX-3 og CX-5 sem hafa slegið í gegn á Íslandi.
Mazda CX-30 er búinn nýjustu tækni þar sem áherslan er á fádæma góða aksturseiginleika, sparneytni og áreiðanleika.Með SKYACTIV aksturstækni bregst Mazda CX-30 við aksturlagi þínu. Ítarlegar rannsóknir Mazda á hegðun og hreyfingu mannsins við akstur skila sér í frábærri akstursupplifun. Hljóðkerfið í Mazda CX-30 er einstakt og hefur verið hannað í samvinnu við Bose® til að búa til þinn fullkomna hljóðheim.
NÝ M-HYBRID VÉLARTÆKNI
M-Hybrid kerfið er alsjálfvirkt en það nýtir hreyfiorkuna sem verður til við hemlun og nýtist þegar aukinnnar orku er þörf eins og t.d. við að ná auknu afli við upptak. Niðurstaðan er aukið afl, minni losun mengandi efna og betri eldsneytisnýting.
AFBURÐA AKSTURSEIGINLEIKAR
Mazda CX-30 býður upp á einstaklega hljóðlátt innra rými þar sem veghljóð er lágmarkað. Dregið hefur verið úr óþarfa hávaða og tritringi til að skapa afburða aksturupplifun. Nýjasta SkyActiv bíltækni Mazda CX-30 leysir þetta á magnaðan hátt sem þú upplifir strax í fyrsta akstri. G-VECTORING PLUS akstursstjórnunartæknin er önnur kynslóð þessa afar fullkomna kerfis. Kerfið skynjar fyrirætlanir ökumannsins eins og hesturinn skynjar knapann sem leiðir til einstakrar upplifunar ökumanns og farþega.
RÍKULEGUR BÚNAÐUR
Nýr Mazda CX-30 er ríkulega búinn og má þar nefna bakkmyndavél, GPS vegaleiðsögn með Íslandskorti, fjarlægðarstillanlegan hraðastilli, blindpunktsaðvörun, lyklalaust aðgengi, 8,8“ skjá, stafrænt mælaborð,framrúðuskjá (head up display) og rafdrifna opnun á afturhlera. Mazda CX-30 fæst bæði fjórhjóladrifinn og framhjóladrifinn.
Verð frá 4.050.000 kr
Allar nánari upplýsingar Markaðsdeild Brimborgar, markadsdeild@brimborg.is og í síma 5157000.
Mazda.is / https://www.mazda.is/is/nyir-bilar/mazda-cx30
Til að bóka reynsluakstur hafið samband við thordur@brimborg.is eða bennyh@brimborg.is.