Frumvarp um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja í samráðsgátt

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt frumvarpsdrög um kílómetragjald á ökutæki í stað vörugjalda á eldsneyti. Miðað er við að lög um gjaldið taki gildi um næstu áramót. Fram kemur í tilkynningu að innleiðing nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu hófst árið 2023.

Í frumvarpinu kemur fram að öruggar og greiðar samgöngur um land allt er sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinnar. Markmiðið er að stuðla að auknu jafnræði hjá notendum vegakerfisins samhliða öflugum hvötum vegna orkuskipta til framtíðar.

Fyrsta skrefið í innleiðingunni var lögfest í byrjun þessa árs þegar tekið var upp kílómetragjald fyrir rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. Áform um innleiðingu kílómetragjalds fyrir notkun allra annarra ökutækja á vegakerfinu árið 2025 voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í ágúst. Í framhaldi af því hefur verið unnið frumvarp í samræmi við þau áform þar sem athugasemdir sem bárust hafa verið hafðar til hliðsjónar. Frumvarpið hefur nú verið birt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda.

Frumvarp um kílómetragjald fyrir öll ökutæki árið 2025

Stefnt er á að leggja fram frumvarp á haustþinginu um kílómetragjald vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu sem komi til framkvæmda þann 1. janúar 2025.

Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að kílómetragjald komi í stað olíu- og bensíngjalda sem gjald fyrir notkun allra ökutækja í vegakerfinu. Til að stuðla að sanngjarnari gjaldtöku er horft til þess að kílómetragjald endurspegli eins og kostur er raunverulega notkun á vegainnviðum eftir fjölda ekinna kílómetra í samræmi við þyngd ökutækja óháð orkugjafa.

Með sama hætti miðar frumvarpið að því að greitt verði fyrir raunverulega losun á koltvísýringi, (CO2) með uppfærðu kolefnisgjaldi sem taki mið af markaðsverði losunarheimilda í viðskiptakerfi Evrópusambandsins (ESB) og skapi þannig hvata til orkuskipta í samræmi við markmið Íslands í loftslagsmálum.

Kílómetragjald frá 6,7 til 43,90 krónur

Í meginatriðum felur frumvarið í sér:

  • Kílómetragjald verði greitt fyrir notkun allra skráningar- og skoðunarskyldra ökutækja á vegakerfinu í stað olíu- og bensíngjalda sem verða afnumin samhliða.
  • Fjárhæð kílómetragjalds taki mið af þyngd ökutækja þar sem niðurbrot og slit af notkun ökutækja á vegum vex með aukinni þyngd.
  • Fjárhæð kílómetragjalds verði sett fram í 29 gjaldbilum þar sem fjárhæðin hækkar í samræmi við þyngd. Fyrir léttustu ökutækin, eins og fólksbíla sem eru með leyfða heildarþyngd allt að 3,5 tonn, verði gjaldið 6,7 krónur á kílómetra. Fjárhæðin hækki svo upp í 43,90 krónur fyrir ökutæki yfir 31 tonn.
  • Kílómetragjald verði greitt af þungum tengivögnum í samræmi við gjaldþrep kílómetragjalds og leggist við kílómetragjald ökutækisins sem dregur.
  • Í samræmi við markmið Íslands í loftslagsmálum og til að tryggja hvata til orkuskipta felur frumvarpið í sér að kolefnisgjald verði uppfært þannig að það taki betur mið af alþjóðlegu markaðsverði fyrir losunarheimildir. Það þýðir að fjárhæð kolefnisgjalds mun u.þ.b. tvöfaldast.

Á heimasíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins segir að við ákvörðun um fjárhæð kílómetragjalds hafi verið horft til þess að kostnaður við rekstur meðalbensínsbíls, sem ekið er 14 þúsund kílómetra á ári og eyðir 7,5 lítrum að meðaltali á hverja 100 km, sé óbreyttur. Frumvarpið geri því ráð fyrir að opinber gjöld og orkukostnaður vegna meðalbensínbíls verði sá sami árið 2025 og hann er árið 2024.

Kostnaður við rekstur annarra bíla verði ýmist hærri eða lægri en meðalbensínbíls og sé það m.a. háð eyðslu. Í byrjun þessa árs var lagt sex króna kílómetragjald á rafmagnsbíla og vetnisbíla og tveggja króna kílómetragjald á tengiltvinnbíla.

Ráðuneytið segir að innleiðing kílómetragjaldsins hafi gengið vel og til marks um það hafi kílómetrastaða um 97% þeirra 51 þúsund bíla sem hún tók til verið skráð fyrir lok janúar. Sú reynsla sem hafi fengist, þeir lærdómar sem hafi verið dregnir, auk mikilvægra ábendinga sem komið hafi fram, verði nýtt við áframhaldandi innleiðingu kerfisins á næsta ári þegar yfir 233 þúsund ökutæki bætast við.

Aukin umferð kallar á samgöngubætur

Samhliða árangri í orkuskiptum, minni eldsneytiseyðslu bílaflotans og vaxandi fólksfjölgun hefur umferð aukist, með tilheyrandi álagi á vegakerfið og þörf fyrir samgöngubætur. Því er mikilvægt að til staðar sé kerfi sem getur stutt fjármögnun uppbyggingar og viðhalds vegasamgangna í takt við notkun.

Stjórnvöld hafa fjárfest í umfangsmiklum samgöngubótum á undanförnum árum til að bregðast við auknu álagi á vegainnviði. Í drögum að þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2024-2038 eru enn frekari framkvæmdir boðaðar með það að markmiði að tryggja greiðar og öruggar vegasamgöngur um allt land.