Gríðarleg aukning í umferð á Hringveginum
Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum jókst um meira en 15 prósent í febrúar sem er gríðarlega mikil aukning, en fyrir ári var líka slegið met í aukningu í umferðinni en nú er aukningin enn meiri. Þetta kemur fram í könnun sem Vegargerðin gerði.
Fram kemur að hluti af skýringunni er að tíðin í febrúar var góð sem skilar sér í aukinni umferð. Nú hefur umferðin frá áramótum aukist um 14 prósent sem er líka met.
Milli mánaða 2016 og 2017
Umferðin jókst um 15,3% milli febrúarmánaða, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi. Þetta er mesta aukning milli febrúarmánaða frá því að þessi samantekt hófst árið 2005. Gamla metið frá síðasta ári var slegið með 0,7 prósentustigum. Þessi mikla aukning kemur Vegagerðinni ekki á óvart þar sem óvenju góð tíð var á landinu í nýliðnum febrúar.
Mest jókst umferðin um Austurland eða um 44%, en næst mest um Suðurland eða um 28%. Hafa ber í huga að umferð um Austurland er jafnframt sú minnsta í þessum samanburði. Minnst jókst umferðin um og við höfuðborgarsvæðið eða um 11%, sem er mjög mikil aukning á þessu svæði, þar sem umferðin er mest að sögn Vegagerðarinnar.
Mest hefur umferðin vaxið á Austurlandi eða um 35% en minnst um höfuðborgarsvæðið eða um 11%, sem er gríðar mikið á þessu svæði.
Umferðin eftir vikudögum milli áranna 2016 og 2017
Það sem af er ári hefur umferðin aukist hlutfallslega mest á fimmtudögum, miðað við sama tímabil á síðasta ári, eða um rúmlega 21%. Minnst hefur aukningin mælst á sunnudögum eða um 8%.
Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst á miðvikudögum.