Grindavíkurvegur opinn fyrir íbúa, viðbragðsaðila og starfsfólk
Grindavíkurvegur, frá Reykjanesbraut að Grindavík, er nú opinn fyrir umferð. Opnunin gildir aðeins fyrir Grindvíkinga, viðbragðsaðila og starfsfólk fyrirtækja í Grindavík og við Svartsengi.
Búið er að leggja nýja vegkafla yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í síðustu þremur eldgosum. Hvorttveggja við vegamótin við Blálónsveg og sunnar þar sem hraun rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu í janúar. Þar hefur verið gerður sveigur á veginn til að leiða umferðina inn til Grindavíkur á milli varnargarða.
Hönnunin er þannig að ekki þarf af fylla upp í það bil á varnargarðakerfinu komi til þess að hraun renni á þessu svæði.
Lokunarpóstur hefur verið færður við afleggjarann að HS Orku í Svartsengi og hægt er að aka óhindrað að Bláa lóninu. Þá hefur lokunarpóstur á Suðurstrandavegi hefur verið færður að P-1 bílastæði við Festarfjall.