Hæstu vegatollarnir verða á morgnana og síðdegis

Eins og flestum er kunnugt var nýr uppfærður samgöngusáttmáli kynntur í síðustu viku. Þar kom meðal annars fram að frá og með árinu 2030 er gert er ráð fyrir tekjum af umferð eða annarri fjármögnun ríkisins. Stjórnvöld vinna að nýrri nálgun á fjármögnun vegakerfisins sem innleidd verður í skrefum á næstu árum.Umferðar- og flýtigjöld er hluti af samgöngusáttmálanum og telur Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, fyrirhugaða innheimtu vegatolla á höfuðborgarsvæðinu stórlega vanhugsaða. Áætlaður kostnaður við sáttmálann er um 311 milljarðar sem hefur hækkað umtalsvert frá upprunalegum sáttmála sem gerður vará haustmánuðum 2019. Verður fjár­fest fyr­ir 14 millj­arða ár­lega til árs­ins 2029 og frá ár­inu 2030 fyr­ir 19 millj­arða til árs­ins 2040.

Höfuðborgarbúar sitja uppi með auknar álögur árum saman

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag að afleiðingin verður dýrkeypt röskun á lífi og högum íbúa til þess eins að innheimta skatta og draga úr umferð einkabíla. Fátt er um boðlegar almenningssamgöngur sem geti mætt ferðaþörfum fólks í staðinn. Höfuðborgarbúar munu því einfaldlega sitja uppi með auknar álögur árum saman án þess að fá nokkuð í staðinn.

Í viðtalinu er Runólfur inntur álits á áformum ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um innheimtu vegatolla af umferð á höfuðborgarsvæðinu, en þau voru kunngjörð í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem var undirritaður í sl. viku. Var þar um að ræða uppfærslu á eldri sáttmála sem undirritaður var af sömu aðilum 2019.

Runólfur segir að í upphaflega samgöngusáttmálanum hafi verið áætlað að tollinnheimta á flýti- og umferðargjöldum skilaði 60 milljörðum króna í tekjur til framkvæmda. Nýja áætlunin geri ráð 143 milljörðum sem sé tæplega 140% hækkun. Upphaflega hafi verið gert ráð fyrir að skatturinn skilaði 50 krónum til verkefnisins af hverri ferð að meðaltali. Ofan á þann kostnað muni bætast stofnkostnaður, rekstrarkostnaður, innheimtukostnaður og virðisaukaskattur. Segir Runólfur að varlega áætlað gæti vegatollurinn að meðaltali hafa orðið um 80 krónur á ferð skv. sáttmálanum frá 2019, hærri á álagstímum og lægri utan þess.

Bíleigendur verði rukkaðir að meðaltali um 200 krónur fyrir hverja ferð

„Miðað við nýju forsendurnar má gera ráð fyrir að bíleigendur verði rukkaðir að meðaltali um 200 krónur fyrir hverja ferð. Fyrir íbúa í ytri byggðum Reykjavíkur og í nágrannasveitarfélögum sem sækja vinnu eða þjónustu í kjarna Reykjavíkur má áætla að vegatollur við að fara til vinnu og koma til baka verði um 400 krónur hvern vinnudag. Við þetta bætast aðrar ferðir. Miðað við vinnudaga á ári gerir þetta um 100 þúsund krónur árlega,“ segir Runólfur og bendir á að ef gert sé ráð fyrir að 70% bíla í umferð á Íslandi borgi vegatollinn verði árlegur skattur um 70 þúsund krónur á hvern bíl að meðaltali.

Áformað sé að setja upp tollahlið á helstu stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu

Runólfur segir ennfremur að áformað sé að setja upp tollahlið á helstu stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu, taka myndir af bílnúmerum og senda reikning til bíleigenda fyrir að vera á ferðinni. Vegatollunum sé ætlað að skila yfir 14 milljörðum króna á ári til að fjármagna samgöngubætur og til að draga úr umferðarþunga á álagstíma. Þar ofan á bætist svo kostnaðurinn við uppsetningu og rekstur tollahliðanna, innheimtukostnaður og virðisaukaskattur.

Vegatollarnir bætast bara við í heimilisbókhaldinu

„Áformin þýða að hæstu vegatollarnir verða á morgnana og síðdegis. Þetta lendir aðallega á þeim sem hafa minnsta sveigjanleikann um mætingu til starfa, til að mynda í skólum, þjónustustörfum og við framleiðslu. Ljóst er á hvaða tekjuhópum þessir hæstu vegatollar muni lenda. Stór hluti fjölskyldna hefur ekkert val um að breyta ferðarútínu sinni eða nota veikburða strætóþjónustu í staðinn fyrir einkabílinn. Vegatollarnir bætast bara við í heimilisbókhaldinu,“ segir Runólfur.

„Með vegatollunum er í raun verið að refsa almenningi fyrir þau skipulagsmistök sem hafa leitt til þess að umferðarþunginn er mestur til og frá póstnúmeri 101. Vaxandi umferðarþunga má einnig skrifa á andstöðu borgaryfirvalda við að bæta umferðarflæði og aðgerðir þeirra til að tefja fyrir umferð,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtalinu við Morgunblaðið.