Hafnarfjarðarbær setur upp hraðhleðslustöð
Hafnarfjörður varð í vikunni eitt af fyrstu sveitarfélögunum landsins til að setja upp hraðhleðslustöð fyrir rafbíla en stöðin er staðsett við verslunarmiðstöðina Fjörð.
Stöðin er 50 kílóvött í hraðhleðslu og 22 kílóvött í hæghleðslu. Stöðin er tengd við hugbúnaðarkerfi Ísorku þannig að notendur hennar geta fylgst með eigin raforkunotkun í gegnum vefsíðuna www.isorka.is og Ísorku-appið.
Gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða við stöðina. Stöðin og uppsetning hennar er fjármögnuð með styrk frá Orkusjóði. Í fyrstu verður ókeypis að hlaða rafbíla í hleðslustöðinni en gert er ráð fyrir mögulegri gjaldtöku á síðari stigum.
Á myndinni eru þær Helga Stefánsdóttir forstöðumaður framkvæmda- og rekstrardeildar og Helga Ingólfsdóttir formaður Umhverfis- og framkvæmdaráðs bæjarins.