Hleðslugarður opnaður í Öskjuhlíð

Orka náttúrunnar hefur opnað nýjan hraðhleðslugarð í Öskjuhlíð með samtals tólf tengjum. Hleðslustöðvarnar í nýja Hleðslugarðinum eru öflugar, 240 kW og eru þær afar þægilegar í notkun. Á stöðvunum er góður upplýsingaskjár sem gerir alla upplifun frábæra og hægt er að velja leiðbeiningar á íslensku og öðrum tungumálum. Í Hleðslugarðinum var aðgengi fyrir öll haft í algeru fyrirrúmi.

 Hleðslugarðurinn er hluti af 10 ára afmælisuppbyggingu ON en sambærilegur Hleðslugarður er í vinnslu við Digranesgötu í Borgarnesi. Stefnt er að opnun fleiri stöðva sem eru fjölskylduvænni, þægilegri og með fleiri tengjum til að lágmarka bið.