HM í e-rallý á Íslandi hluti af mótaröð alþjóðaaksturssambandsins FIA
Í gær hófst FIA eRally Iceland 2020, alþjóðleg keppni, sem er hluti af mótaröð alþjóðaaksturssambandsins FIA sem það hleypti af stokkunum undir heitinu: FIA Electric and New Energy Championship. Keppnin á Íslandi gefur stig til heimsmeistaratitils og Íslandsmeistaratitils og kallast íslenska keppnin eRally Iceland 2020. Fjögur erlend lið eru skráð til keppni og þrjú íslensk.
Heimsmeistaramótið í e-rallý á Íslandi stendur yfir í þrjá daga en eknir verða 5 leggir með 21 sérleið. Heildarfjöldi kílómetra verða 703,68 og heildaraksturstími verður 14 tímar og 32 mínútur.
Tvö íslensku liðanna keppa á rafbílum frá Brimborg. Á Peugeot e-208 eru það Jóhann Egillsson ökumaður og Pétur Wilhelm Jóhannsson aðstoðarökumaður. Á Peugeot e-2008 keppa Hinrik Haraldsson ökumaður og Marinó Helgi Haraldsson aðstoðarökumaður.
„Markmið eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku og gefa frá sér minnsta mögulegt magn mengunar og koltvísýrings. Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja.
Heimsmeistaramótið í e-rallý er að öllu leyti helgað rafknúnum ökutækjum. Ekki má gera neinar breytingar á bílunum og verða keppendur að geta notað ökutæki sín til daglegrar notkunar. Markmið keppninnar er að keyra akstursleið á ákveðnum tíma og ákveðnum meðalhraða.
Til viðbótar þarf ökumaður að huga að rafmagnseyðslunni og halda henni í lágmarki. Refstig eru gefin ef keyrt er of hratt eða of hægt, of stutt eða of langt og einnig eru gefin refsistig ef eyðsla í keppninni er umfram uppgefna raforkunotun bílsins skv. WLTP staðli.