Hverfahleðslum fjölgar í borginni

Reykjavíkurborg og ON hafa gengið frá samningi um uppsetningu og rekstur hverfahleðslustöðva við 94 götustæði víðs vegar um borgina. Markmiðið er að styðja við orkuskipti í samgöngum með aðgengilegum og notendavænum hleðslulausnum í hverfum borgarinnar.

Í kjölfar undirritunar samningsins hefur Reykjavíkurborg fundað með öllum þeim þjónustuaðilum sem taka þátt í verkefninu og afhent staðsetningarnar þar sem hleðslustöðvarnar verða settar upp. Þó svo að nokkrar staðsetningar séu enn í framkvæmd, er búist við því að meirihluti stöðvanna verði kominn upp og tilbúinn til notkunar innan nokkurra vikna.

Um er að ræða mikilvægt skref í átt að sjálfbærari samgöngum í Reykjavík og bæta þannig enn frekar aðgengi fyrir rafbílaeigendur og auðvelda um leið skiptin yfir í rafbíla.

Hleðslustöðvarnar verða staðsettar í nálægð við fjölbýlishús og almenn bílastæði, í samræmi við stefnu borgarinnar um að styðja við orkuskipti á bílum íbúa sem ekki eiga kost á að leggja og hlaða bíl á lóð sinni.

Verkefnið er liður í framtíðarsýn Reykjavíkurborgar um loftslagsvænni borg og er unnið í nánu samstarfi við ON. Heildarfjöldi hleðslustæða sem ætluð eru almenningi í þessu samstarfsverkefni  er nú orðin 372 en auk þess rekur Reykjavíkurborg fjölda hleðslustæða í bílastæðahúsum borgarinnar.