Kílómetragjald lagt á bifreiðar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti

Í fjárlagafrumvarpi næsta árs sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármálaráðherra, kynnti í morgun kemur fram að ein stærsta skatt­kerf­is­breyt­ing árs­ins felst í kerf­is­breyt­ingu á gjald­töku af öku­tækj­um og eldsneyti. Í byrj­un árs­ins verður kíló­metra­gjald einnig lagt á bif­reiðar sem ganga fyr­ir jarðefna­eldsneyti. 

Vörugjöld af bensíni og olíugjald af dísilolíu felld niður

Fram kemur að með hröðum orkuskiptum í samgöngum og sífellt sparneytnari bílvélum hafa tekjur af ökutækjum og eldsneyti fallið töluvert. Til að bregðast við þeirri þróun hefur verið ákveðið að taka upp kílómetragjald vegna notkunar bifreiða en samhliða verða eldri gjöld felld niður, þ.e. vörugjöld af bensíni og olíugjald af dísilolíu. Jafnframt verður kolefnisgjald hækkað til að viðhalda hvötum til orkuskipta.

Fyrsta skrefið í þessari kerfisbreytingu var tekið í byrjun árs 2024 með upptöku kílómetragjalds á notkun rafmagns-, tengiltvinn- og vetnisbifreiða. Annað skrefið verður stigið í byrjun árs 2025 og felst í því að kílómetragjald verður einnig lagt á bifreiðar sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti.

Í tilkynningunni kemur fram að með þessum breytingum er ekki aðeins skotið styrkari stoðum undir tekjuöflun ríkisins heldur einnig komið á skilvirkara og sanngjarnara gjaldakerfi þar sem þeir borga sem nota vegakerfið en þó að teknu tilliti til áhrifa af þyngd ökutækja á vegslit.

Vegna fyrirhugaðrar kerfisbreytingar á gjaldtöku af notkun ökutækja munu bensín- og olíugjöld falla niður. Önnur krónutölugjöld hækka um 2,5%, í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga og í takt við verðbólgumarkmið þrátt fyrir að verðbólga sé áætluð 5,2% á yfirstandandi ári af því er fram kemur í tilkynningunni.

Með inn­leiðingu kíló­metra­gjalds fyr­ir bens­ín- og dísil­bíla á næsta ári munu bæt­ast við sam­tals 233.000 öku­tæki sem greiða þarf gjaldið af.

Í samgöngum á m.a. að leggja 6,4 milljarða króna til uppbyggingar innviða á höfuðborgarsvæðinu.