Malbik stóðst ekki kröfur
Malbik sem lagt var á nokkra kafla á höfuðborgarsvæðinu í sumar, þar á meðal á Kjalarnesi, stóðst ekki kröfur sem til þess eru gerðar í útboði Vegagerðarinnar og munar miklu. Tveir einstaklingar á bifhjóli létu lífið á þessum vegakafla 28. júní í sumar.
Kröfur um holrýmd stóðust ekki og heldur ekki kröfur um viðnám að útlögn lokinni. Þetta er niðurstaða fyrstu rannsóknar á malbikskjörnum frá fimm köflum sama útboðs. Sýni voru rannsökuð hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og hjá VTI í Svíþjóð. Frekari rannsóknir fara nú fram.
Krafa Vegagerðarinnar er sú að holrýmd skuli liggja á bilinu 1% til 3%. Niðurstöður rannsókna á borkjörnum úr vegi sýna að holrýmd sé allt niður undir 0,1% og framleiðsluniðurstöður sýna holrýmd 0,1% upp í 0,5%.
Vegagerðin vinnur nú að því að yfirfara alla verkferla út frá niðurstöðu skýrslunnar og hvernig eftirliti með verktökum verði háttað í framtíðinni.Engin ákvörðun liggur fyrir hvort málið verði kært.
Hemlunarviðnámsmælingar kaflanna, utan eins, sýna að þeir uppfylla ekki kröfur Vegagerðarinnar um lágmarks hemlunarviðnám, sem hefur gildið 0,5.
Kaflarnir fimm eru á Reykjanesbraut, Bústaðavegi, Sæbraut, Kjalarnesi og Gullinbrú. Eini kaflinn sem stóðst kröfur um viðnám er á Sæbraut, aðrir kaflar hafa verið fræstir og lagt yfir þá aftur nýtt malbik sem stenst kröfur. Undanskilinn er kafli á einni akbraut á Reykjanesbraut sem er enn til rannsóknar og verður líklega einnig fræstur og yfirlagður upp á nýtt.
Þetta eru fyrstu niðurstöður rannsókna sem standa enn yfir. Rannsóknum verður framhaldið hjá Nýsköpunarmiðstöð, VTI, Vegagerðinni og hjá malbiksframleiðendum.