Mest ekið á föstudögum á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í september jókst um 1,5 prósent en það er minnsta aukningin í einum mánuði á þessu ári. Þetta er einnig mun minni aukning en að meðaltali í september áranna 2005-2018. Umferðin á svæðinu hefur aukist í ár um 2,7 prósent sem er einungis einn þriðji þess sem aukning var á sama tíma í fyrra.
Umferðin um 3 lykilsnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,5% í nýliðnum mánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þetta er minnsta aukning milli einstakra mánaða á þessu ári, en fram til þessa hefur umferðin aukist mest á milli janúar mánaða 2017 og 2018 eða um 4,6%.
Nú hefur umferðin aukist að jafnaði um 2,9%, í september, frá árinu 2005 þ.a.l. er umrædd aukning einungis helmingur þess sem gerist í meðalári. Mest jókst umferðin í sniði fyrir ofan Ártúnsbrekku eða um 3,3% en dróst saman um 0,8% í sniði á Reykjanesbraut við Dalveg. Umferðin hefur nú aukist um 2,7% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta er rúmlega þrisvar sinnum minni aukning en á sama tíma á síðasta ári.
Umferð eftir vikudögum
Í september var mest ekið á föstudögum rétt sjónarmun meira en á fimmtudögum. Minnst var ekið á sunnudögum. Hlutfallslega jókst umferðin mest á miðvikudögum eða um 4,6% en minnst jókst umferðin á laugardögum eða um 0,8%.
Umferð á bíllausa deginum, laugardaginn 22. sept., var 1,5% meiri en á meðallaugardegi í septembermánuði.