Mikil aukning umferðar á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst um tæp átta prósent í nýliðnum maí mánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Aldrei áður hefur umferðin í maí aukist jafn mikið. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 8,4 prósent og reikna má með að aukningin í ár muni verða um sjö prósent.
Áætlað er að umferðin hafi aukist samtals um 7,9 % fyrir þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er met aukning á milli maí mánaða frá upphafi þessarar samantektar.
Mest er var aukningin um mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi eða 10,6% aukning.
Nú hefur umferðin aukist um 8,4 %, frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þetta er rúmlega einu prósenti meiri aukning miðað við árstíma en var á síðasta ári þannig að hér er um nýtt met að ræða miðað við árstíma.
Umferðin jókst mest á fimmtudögum eða um 6,3 % en stóð í stað á þriðjudögum. Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.
Nú eru líkur á því að umferðin aukist um 7 % yfir mælisniðin þrjú miðað við árið 2016. Ef það gengur eftir yrði það svipuð aukning og varð á síðasta ári en þá jókst umferðin um 7,2 % yfir mælisniðin þrjú.