Mikilvægt að skafa snjó af ljósunum

Nokkuð hefur borið á því undanfarið að ökumenn hirði ekki um að skafa snjó af ljósum bíla sinna en með slíku háttalagi setja ökumenn sjálfa sig og aðra vegfarendur í talsverða hættu.

Að skafa snjó og hrím af rúðum og ljósum bílsins áður en lagt er af stað út í umferðina á að vera eins sjálfsagt eins og að setja á sig bílbelti. Ökumenn eru hvattir til að taka sig á í þessum efnum en með því sé öryggi allra betur tryggt.

Það er ennfremur mik­il­vægt að hreinsa snjó vel af bíln­um en það dug­ar ekki aðeins að hreinsa af rúðum, spegl­um og ljós­um held­ur er einnig mik­il­vægt að snjór sé hreinsaður af þaki bíls­ins svo hann renni ekki skyndi­lega fram á framrúðuna og byrgi öku­manni sýn. Slíkt get­ur skapað mikla hættu.

Þess má geta að sekt við brotum á umferðarlögum þar sem snjór og ísing hindrar útsýni ökumanna er 20 þúsund krónur.