Mitsubishi Outlander PHEV mest seldi tengitvinnbíllinn
Mitsubishi Outlander PHEV er mest seldi tengiltvinnbíllinn á Íslandi samkvæmt opinberum tölum og á það bæði við um heildarsölu ársins 2016 og fyrstu tvo mánuði ársins 2017.
Tengiltvinnbíll er bifreið sem er bæði með hefðbundna vél og gengur jafnframt fyrir rafmagni, en slíkir bílar verða æ vinsælli þegar bifreiðaeigendur huga að vistvænni lífsmáta. Þetta kemur fram á heimasíðu Bílgreinasambandsins.
Mitsubishi, sem fagnar 100 ára afmæli á þess ári, fær því góða byrjun á afmælisárinu, en ekki bara hvað varðar metsölu á Mitsubishi Outlander PHEV.
Salan á Mitsubishi bílum hefur nefnilega tvöfaldast milli ára í magni og að auki hefur markaðshlutdeild Mitsubishi aukist um 60% það sem af er ári 2017 og er Mitsubishi nú komið í hóp 10 mest seldu vörumerkja á Íslandi.
HEKLA, sem verið hefur umboðsaðili Mitsubishi um árabil, fagnar sterkari stöðu vörumerkisins og um leið 100 ára afmæli Mitsubishi.